Kobe setti 40 - Lakers komnir í 1-0

kobe_bryantKobe Bryant skoraði 40 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í nótt þegar Los Angeles Lakers unnu fyrsta leikinn í seríu Lakers og Phoenix Suns, 128-107.

Lakers eru því komnir í 1-0 forystu í seríunni og þurfa að vinna þrjá leiki í viðbót til þess að fara í lokaúrslit deildarinnar en næsti leikur er í Los Angeles, eins og þessi, svo fara tveir leikir fram í Phoenix og svo er einn og einn heimaleikur ef til þarf.

Eins og fyrr segir var Kobe Bryant með 40 stig, en bekkur Lakers var hörku góður, en Lamar Odom skilaði 19 stigum, Jordan Farmar 10 og Shannon Brown 9.

Phoenix-liðið var frekar dauft í dálkinn en Amare Stoudemire var stigahæstur hjá  þeim. Hann skoraði 23 stig en tók einungis þrjú fráköst.

Stigaskor Lakers:

Bryant: 40
Gasol: 21
Odom: 19
Artest: 14
Farmar: 10
Brown: 9
Fisher: 5
Bynum: 4
Powell: 2
Walton: 2

Stigaskor Suns:

Stoudemire: 23
Richardson: 15
Lopez: 14
Nash: 13
Dragic: 13
Barbosa: 11
Hill: 7
Dudley: 5
Frye: 3
Amundson: 3


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fimm?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband