Færsluflokkur: NBA
Pavlovic til Wolves
16.9.2009 | 20:42
Minnesota Timberwolves eru svo sannarlega að reyna að komast í baráttuna um að fara í úrslitakeppnina næstkomandi tímabil, en að þessu sinni hafa þeir fengið til sín framherjann/skotbakvörðinn Aleksandar Pavlovic.
Pavlovic fór til Phoenix Suns frá Cleveland Cavaliers í Shaq skiptunum en Phoenix hafa svo sem ekki grætt nákvæmlega neitt fyrir þessi skipti. Pavlovic er orkubolti af bekknum og gæti komið inn fyrir Wolves og sett nokkra þrista í svona 5-15 mínútur.
Timberwolves koma nú til með að landa 8.-10. sætinu í vestrinu en þeir eru mjög líklegir á að komast í úrslitakeppnina, en þeir munu þá líklegast spila við SA Spurs eða LA Lakers í einvígi 1 en munu ekki komast langt.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
MJ á Russel
16.9.2009 | 07:09
MJ og Byron Russel standa í rifrildum....
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stack til Hawks?
15.9.2009 | 18:45
Farið gæti svo að framherjinn Jerry Stackhouse sé á leiðinni til miðlungsliðsins Atlanta Hawks, en Stackhouse var á æfingum hjá New York Knicks í sumar og fólk bjóst við því að leikmaðurinn mundi ganga til liðs við það "stórveldi".
Atlanta eru þar að fá frábæran liðsstyrk ef hann kemur, en hann mun þá væntanlega vera þriðji framherji og þriðji skotbakvörður, ef ekki fjórði, en hann mun þá spila um 10-15 mínútur að meðaltali í leik.
Stackhouse er á seinni hluta ferils síns, en hann er svo sannarlega búinn að sýna það og sanna að hann að úr góðu byggður en auðvitað hefur hann líka sannað að hann sé mennskur, því hann er orðinn síðri en á árum áður.
* Kareem Abdul-Jabbar er ekki mennskur.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ostertag að hugleiða endurkomu
14.9.2009 | 20:16
Svo gæti farið að Greg Ostertag sé á leiðinni í NBA aftur, en Ostertag spilaði á árum áður með Utah Jazz. Allir sem hafa séð hann leika og hafa séð hans fallega dans í Sacramento munu aldrei í lífinu gleyma manninum; Nú gæti hann komið aftur.
Ferill Ostertags er hér.
NBA | Breytt 15.9.2009 kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
James Singleton áfram hjá Dallas Mavs
14.9.2009 | 20:03
Dallas Mavericks eru búnir að ná samkomulagi við framherjann James Singleton um að endurnýja samning sinn við félagið, en hann mun gera það á næstu dögum eða um helgina. Singleton var frábær hjá Mavericks á síðasta tímabili og var með 5,1 stig og 4,0 fráköst að meðaltali í leik.
Singleton var að koma inn á fyrir Dirk Nowitzki, á eftir Brandon Bass og einnig var hann að spila eitthvað í framherjanum en ekki kraftframherjanum eins og venjulega. Þar kom hann inn á fyrir Josh Howard á eftir Antoine Wright og Shawne Williams í örfá skipti, þegar hann var ekki meiddur.
(Sigleton er ungur og efnilegur.)
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Warren Carter og Sun Yue til Knicks
14.9.2009 | 16:07
New York Knicks hafa náð samningi við þá Sun Yue og Warren Carter, Yue var rekinn frá LA Lakers fyrr í sumar og þar kemur einnig fyrir bakvörðurinn Gabe Pruitt, sem Knicks voru einnig að fá til sín. Þá hafa þeir einnig fengið leikmann að nafni Warren Carter en hann 206 cm framherji og var í Illinois háskólanum.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pruitt til Knicks
13.9.2009 | 20:28
Annar leikmaður sem var valinn í nýliðavalinu árið 2007 hefur nú gert samning við lið, en að þessu sinni var það bakvörðurinn Gabe Pruitt. Pruitt var valinn mun fyrr en Ramon Sessons sem er hinn liðaskiptirinn sem var valinn árið 2007, en Pruitt var valinn 32. en Sessions númer 56, en Sessions hefur verið svo mikið mikið betri að hann verðskuldar miklu meira að hafa unnið titil en Pruitt, en Pruitt vann titil með Boston Celics á nýliðaári sínu í NBA-deildinni.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sessions endanlega til T´Wolves
13.9.2009 | 20:16
Ramon Sessions er nú að pakka og fara til Minneappolis því gamla lið hans, Milwaukee Bucks hafa ákveðið að jafna ekki tilboð Minnesota Timberwolves í leikmanninn en Sessions var "restricted free agent" og áttu því Bucks rétt á því að jafna hvaða tilboð sem er í leikmanninn þó hann mundi samþykkja boð annarra liða. Sessions átti frábært tímabil á því liðna en hann var með 12,4 stig, 5,7stoðsendingar og 3,4 fráköst, auk þess sem hann stal 1,0 bolta.
Þetta, og annað tímabil hans var hans albesta, en á tímabilinu 2007-2008 skoraði hann réttrúm 8 stig, en hann gaf þó 7,5 stoðsendingar, en hann tapaði mun fleiri boltum, stal jafn mikið og hirti jafn mikið af fráköstum. Hann var með lélegri vítaprósentu á fyrra tímabili sínu, en þó mun betri þriggja stiga nýtingu.
Sessions samdi við Wolves til fjögurra ára og fær á þeim tíma 16,4 milljónir dollara, en hann hefur ekki fengið svo mikið áður, enda var hann valinn 56. í nýliðavalinu árið 2007 og númer 56 er fimmti síðasti leikmaðurinn sem er valinn í öllu heila nýliðavalinu.
(Sessions, í leik með fyrrum liði sínu, Bucks.)
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
MJ, Robinson og Stockton í höllina
12.9.2009 | 11:21
Michael Jordan verður innleiddur í frægðarhöllina í dag en aldrei var spurning hvort hann myndi komast þangað. Jordan var langbesti leikmaður í heimi á sínum tíma, eða í kringum 1990, en hann var það líka nokkur ár eftir það, en svo hægði hann aðeins á sér kannski síðustu 3 árin, enda orðinn fertugur.
Þá er hinn frábæri John Stockton einnig á leiðinni í höllina, en hann átti glæstan feril með tæpum 16,000 stoðsendingum og um 20,000 stigum. Stockton á þetta svo sannarlega skilið.
David Robinson mun ganga í höllina í dag, en hann skilaði 2 titlum í skáp San Antonio Spurs, en hann var frábær leikmaður og eitt sinn, á móti Los Angeles Clippers skoraði hann 71 stig en það er eitt af því besta sem hefur skorast í NBA.
Jerry Sloan mun einnig vera innleiddur í höllina í dag en ekki fyrir að hafa verið fínn leikmaður á 7. og 8. áratuginum heldur fyrir að hafa unnið 1000 leiki með einu liði sem þjálfari, og það eru Utah Jazz sem voru það heppnir að fá þennan frábæra þjálfara.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)