Færsluflokkur: NBA
Lee verður áfram með Nets á næstu leiktíð
10.4.2010 | 20:28
Courtney Lee, leikmaður New Jersey Nets verður áfram með þeim á næstu leiktíð en hann er búinn að standa sig ágætlega og skora 12,3 stig og er búinn að hirða hirða 3,5 fráköst að meðaltali í leik sem er bísna gott fyrir leikmann á öðru ári sínu í deildinni.
NBA | Breytt 11.4.2010 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurs halda Ginobili
10.4.2010 | 10:18
Skotbakvörður San Antonio Spurs, Emanuel (Manu) Ginobili, hefur framlengt samning sinn við liðið til þriggja ára.
Á þessum þremur árum fær hann 5 milljarða íslenskra króna í laun, eða um 1,6 milljarða á ári, ef ekki verður hækkað launin milli ára.
Á þeim átta árum sem Argentínumaðurinn hefur spilað fyrir Spurs hefur hann fagnað þremur NBA-meistaratitlum, 2003, 2005 og 2007.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar
10.4.2010 | 09:59
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar - Bulls unnu Cavs
9.4.2010 | 17:12
Lítið var um að vera í NBA-körfuboltanum í nótt, en þó spennandi og skemmtilegir leikir.
Chicago Bulls eru nú jafnir Toronto Raptors í áttunda sæti Austurstrandarinnar eftir eins stigs sigur á Cleveland Cavaliers, 109-108.
LeBron James tók sér frí frá leiknum og var það mikill missir fyrir liðið, en auðvitað áttu Bulls áttu svo sannarlega skilið að vinna leikinn.
Þrír leikmenn í liði Bulls voru með tvöfalda tvennu (Deng: 22/10Rose: 24/10 Noah 17/15) og auk þess var Brad Miller nálægt tvennu með 12 stig og 6 fráköst.
Þá unnu Denver Nuggets unnu tveggja stiga sigur á Los Angeles Lakers en Carmelo Anthony bjargaði deginum fyrir þá.
Kobe Bryant tók sér frí eins og LeBron, auk þess sem Andrew Bynum var ekki með Lakers-liðinu. Frakkinn Johan Petro hefur stimplað sig ágætlega inn í byrjunarlið Nuggets eftir að Kenyon Martin meiddist, en hann var með 2 stig og7 fráköst á 18 mínútum í nótt.
Carmelo var með 31 stig hjá Nuggets og á eftir honum kom stórskyttan J.R. Smith með 27 stig. Stigahæstur hjá Lakers var Pau Gasol með 26 stig.
Þess má geta að einn leikur í viðbót fór fram í nótt, Sacramento Kings-Los Angeles Clippers, en hann fór 116-94 fyrir Kings. Tölfræði leiksins má sjá hér.
NBA | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
NBA í nótt: Lakers heimsækja Nuggets
8.4.2010 | 15:51
Meistarar Los Angeles Lakers mæta í nótt Denver Nuggets, en Nuggets hafa unnið þrjá leiki í röð.
Lakers hafa einungis unnið einn leik af þeim þremur sem liðin hafa keppt, og var það sá eini sem var eitthvað spennandi, en hann fór 95-89 fyrir Lakers.
Lakers eru í fyrsta sæti Vestursins þrátt fyrir slappt gengi að undanförnu, 6 sigrar og 4 töp í síðustu 10 leikjum, en Nuggets eru í þriðja sæti Vestursins þrátt fyrir enn verra gengi upp á síðkastið, eða 5 sigrar og 5 töp í síðustu 10 leikjum.
Þá taka Sacramento Kings á móti Los Angeles Clippers, ogbæði liðin eru í baráttu um 10-12 sætið svo mikil stemning verður á leiknum, en sem stendur eru Kings í 14. sæti og Clippers í 12. sæti, en bæði liðin eru í Vestrinu.
Tyreke Evans er stigahæstur í liði Kings, með 20,0 stig að meðaltali í leik, auk þess sem hann skilar 5,3 fráköstum og 5,8 stoðsendinum í leik.
Hjá Clippers er Chris Kaman stiga- og frákastahæstur, auk þess sem hann er með flest varin skot að meðaltali í leik hjá þeim, eða 1,2. Hann er með 18,3 stig og 9,4 fráköst í leik.
Í þriðja og síðasta leik næturinnar mætast Cleveland Cavaliers og Chicago Bulls.
Cavaliers eru langefstir á NBA-listanum með 61 sigur g 17 töp, en eru í 9. sæti Austursins með 37 sigra og 40 töp. Hins vegar eru Toronto, í því áttunda aðeins einum leik á undan Bulls, svo Cavs og Bulls gætu mæst í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Bulls hafa unnið einn af þeim þremur leikjum sem liðin hafa keppt á tímabilinu, og hann unnu þeir með einu stigi, 85-86.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar
7.4.2010 | 17:05
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar - Spurs unnu Lakers
5.4.2010 | 22:20
Los Angeles Lakers töpuðu í nótt sínum fjórða leik af síðustu sex. Nú voru það San Antonio Spurs sem lögðu meistarana af velli, og það í Staple Center, heimavelli Lakers.
Eins og að undanförnu átti Manu Ginobili frábæran leik, auk þess sem Tim Duncan steig val upp, þar sem hann skilaði 24 stigum, 11 fráköstum og 4 stoðsendingum.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Páskafrí
5.4.2010 | 15:54
Ástæðan fyrir því að engar fréttir hafa borist til lesenda á síðustu dögum er sú að ritstjórn NBA-Wikipedia hefur tekið sér smá frí, sem nokkuð margir gera um páskana.
Allt hefur verið á ferð og flugi, ritarar síðunnar í sumarbústað og fleira, en nú munum við aftur hefjast handa við að skrifa sem mest og best.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar - Átta í röð hjá Suns
31.3.2010 | 11:34
Phoenix Suns unnu sinn áttunda leik í röð í nótt, en þeir unnu nauman sigur á Chicao Bulls, 105-111.
Jason Richardson skoraði 27 stig í leiknum, Steve Nash skoraði 22 stig og gaf 10 stoðsendingar og Amaré Stoudemire skoraði 21, auk þess sem hann hirti 11 fráköst.
Í leik Houston Rockets og Washington Wizards skorai Andre Blatche 31 stig og tók 10 fráköst. Chase Budinger, í liði Rockets, skoraði 24 stig og hreinlega kláraði leikinn, sem fór 98-94.
Indiana 102 - 95 Sacramento
Philadelphia 93 - 111 Oklahoma
Chicago 105 - 111 Phoenix
Milwaukee 107 - 89 LA Clippers
Houston 98 - 94 Washington
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Martin til Wiz - Gee látinn fara
30.3.2010 | 10:35
Framherjinn Cartier Martin, sem hefur verið að gera góða hluti hjá Golden State Warriors samdi í gær við Washington Wizards. Hann vildi ekki nýjan tíu daga samning hjá Warriors.
Martin er með 9,0 stig og 4,7 fráköst að meðaltali í leik, auk þess sem hann er að hitta úr 76% víta sinna.
Þá var bakverðinum Anlonzo Gee svift samningi sínum við Wizards en hann er einnig búinn að standa sig með prýði.
Hann er með 7,4 stig og 2,9 fráköst að meðaltali í leik en hæsta skor hans í einum leik er 19 stig, gegn Charlotte Bobcats fyrir stuttu.
San Antonio Spurs hafa nú samið við hann út tímabilið en þeir eru búnir að standa sig vel upp á síðkastið.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)