Færsluflokkur: Íþróttir
Meistaradeildin í körfubolta: Barcelona - CSKA Moskva
7.5.2010 | 17:16
Leikur Barcelona og CSKA Moskva í Meistaradeild Evrópu í körfubolta er nú í gangi. Þriðji leikhluti er rúmlega hálfnaður og Barcelona eru yfir með sjö stigum, 45-38.
Smelltu hér að neðan til að sjá leikinn og þulir leiksins eru auðvitað íslenskir.
http://www.mbl.is/mm/sport/sporttv.html?game_id=66
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvífarar: Brent Barry og Sverrir Þór Sverrisson
7.5.2010 | 15:43
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lið ársins
7.5.2010 | 14:45
Valnefnd íþróttafréttamanna hefur kjörið lið ársins í NBA. LeBron James og Dwight Howard fengu langflestu atkvæðin, og voru nánast fyrirfram komnir í liðið.
Lið eitt:
Dwight Howard
Kevin Durant
LeBron James
Kobe Bryant
Dwyane Wade
Lið tvö:
Amare Stoudemire
Dirk Nowitzki
Carmelo Anthony
Deron Williams
Steve Nash
Lið þrjú:
Andrew Bogut
Tim Duncan
Pau Gasol
Brandon Roy
Joe Johnson
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Superman leiddi Magic til sigurs - komnir 2-0 yfir
7.5.2010 | 14:28
Dwight Hward skoraði 29 stig og reif 17 fráköst í nótt þegar Orlando Magic tóku 2-0 forystu í einvígi þeirra gegn Atlanta Hawks, en leikurinn fór 112-98fyrir Magic.
Fjórir leikmenn hjá Magic skoruðu 20 stig eða meira, en það voru þeir Howard, Vince Carter (24 stig), Rashard Lewis (20 stig) og Jameer Nelson (20 stig).
Mike Bibby fann sig engan veginn í leiknum en hann skoraði 3 stig og gaf eina stoðsendingu á 13 mínútum.
Al Horford var stigahæstur hjá Hawks með 24 stig, auk þess sem hann tók 10 fráköst. Jamal Crawford kom næstur á eftir honum með 24 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Varnarlið ársins
6.5.2010 | 17:31
Þjálfarar NBA-deildarinnar eru búnir að velja varnarlið ársins.
Sá sem hlaut mesta fjölda atkvæða var Dwight Howard, sem kemur ekki á óvart. Rajon Rondo kom svo næstur á eftir honum.
Kobe Bryant, sem valinn var í ár, hefur verið í liðinu síðustu fimm árin, sem er mikill heiður fyrir leikmanninn.
Svona er liðið:
Dwight Howard - Orlando Magic
Gerald Wallace - Charlotte Bobcats
LeBron James - Cleveland Cavaliers
Kobe Bryant - Los Angeles Lakers
Rajon Rondo - Boston Celtics
Lið númer tvö:
Anderson Varejo - Cleveland Cavaliers
Tim Duncan - San Antonio Spurs
Josh Smith - Atlanta Hawks
Thabo Sefolosha - Oklahoma City Thunder
Dwyane Wade - Miami Heat
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orlando unnu Atlanta
5.5.2010 | 21:15

Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lakers fóru létt með Jazz
5.5.2010 | 21:12

Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Wallace með 17 - Celtics jöfnuðu metin
4.5.2010 | 18:27
LeBron James tók í nótt við titlinum sem besti leikmaður NBA-deildarinnar annað árið í röð, en skoraði aðeins 24 stig í tapi Cleveland Cavaliers fyrir Boston Celtics, 86-104.
Rasheed Wallace skoraði 17 stig á einungis 18 mínútum, en Rajon Rondo, bakvörður Celtics, átti ótrúlegan leik með 4 fráköst, 13 stig og 19 stoðsendingar!
Anderson Varejo átti fínan leik af bekknum með 8 stig og 7 fráköst, en stigahæstur hjá Cavaliers var LeBron James með 24 stig, sem fyrr segir, en hann átti ekkert of góðan leik þar sem hann tapaði fimm boltum og brenndi af átta skotum af fimmtán.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Atlanta unnu oddaleikinn - Kobe kláraði Jazz
3.5.2010 | 15:31
Svo er víst að Atlanta Hawks mæta Orlando Magic í annarri umferð úrslitakeppni NBA, en þeir unnu Milwaukee Bucks nokkuð örugglega í oddaleik liðanna í gær, 95-74.
Jamal Crawford skoraði 22 stig og gaf 6 stoðsendingar í leiknum, en Al Horford átti stórkostlegan leik með 16 stig, 15 fráköst og 4 stoðsendingar.
Brandon Jennings og Ersan Ilyasova voru bestir í liði Bucks, en Jennings skoraði 15 stig og gaf 5 stoðsendingar og Ilyasova skoraði 13 stig og reif 11 fráköst.
Kobe Bryant skoraði 31 stig og gaf 4 stoðsedingar í sigri Los Angeles Lakers á Utah Jazz, 104-99, en Lakers eru nú komnir 1-0 yfir í seríu liðanna.
Pau Gasol átti einnig góðan leik með 25 stig og 12 fráköst en bekkur Lakers stóð sig mjög vel, 22 stig og 15 fráköst frá honum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
LeBron skoraði 35 stig - Cavaliers komnir í 1-0
2.5.2010 | 12:40
Cleveland Cavaliers tóku á móti Boston Celtics í fyrsta leik annarrar umferðar úrslitakeppni NBA. Þeir unnu leikinn með átta stigum, 101-93.
LeBron James, framherji Cleveland, skoraði 35 stig, tók 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar, en hjá Boston var Rajon Rondo langbestur, en hann skoraði 27 stig, gaf 12 stoðsendingar og reif 6 fráköst.
Serían stendur sem sagt í 1-0 fyrir Cavaliers, en næsti leikur liðanna er á morgun klukkan 00:00 að íslenskum tíma. Tveir leikir fara fram í kvöld, Atlanta Hawks-Milwaukee Bucks (oddaleikur) sem fer fram klukkan 17:00 að íslenskum tíma og LA Lakers-Utah Jazz (fyrsti leikur í annarri umferð) sem er sýndur á Stöð 2 Sport klukkan 19:30.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)