Færsluflokkur: Free Agency
Stack til Hawks?
15.9.2009 | 18:45
Farið gæti svo að framherjinn Jerry Stackhouse sé á leiðinni til miðlungsliðsins Atlanta Hawks, en Stackhouse var á æfingum hjá New York Knicks í sumar og fólk bjóst við því að leikmaðurinn mundi ganga til liðs við það "stórveldi".
Atlanta eru þar að fá frábæran liðsstyrk ef hann kemur, en hann mun þá væntanlega vera þriðji framherji og þriðji skotbakvörður, ef ekki fjórði, en hann mun þá spila um 10-15 mínútur að meðaltali í leik.
Stackhouse er á seinni hluta ferils síns, en hann er svo sannarlega búinn að sýna það og sanna að hann að úr góðu byggður en auðvitað hefur hann líka sannað að hann sé mennskur, því hann er orðinn síðri en á árum áður.
* Kareem Abdul-Jabbar er ekki mennskur.
Ostertag að hugleiða endurkomu
14.9.2009 | 20:16
Svo gæti farið að Greg Ostertag sé á leiðinni í NBA aftur, en Ostertag spilaði á árum áður með Utah Jazz. Allir sem hafa séð hann leika og hafa séð hans fallega dans í Sacramento munu aldrei í lífinu gleyma manninum; Nú gæti hann komið aftur.
Ferill Ostertags er hér.
Free Agency | Breytt 15.9.2009 kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
James Singleton áfram hjá Dallas Mavs
14.9.2009 | 20:03
Dallas Mavericks eru búnir að ná samkomulagi við framherjann James Singleton um að endurnýja samning sinn við félagið, en hann mun gera það á næstu dögum eða um helgina. Singleton var frábær hjá Mavericks á síðasta tímabili og var með 5,1 stig og 4,0 fráköst að meðaltali í leik.
Singleton var að koma inn á fyrir Dirk Nowitzki, á eftir Brandon Bass og einnig var hann að spila eitthvað í framherjanum en ekki kraftframherjanum eins og venjulega. Þar kom hann inn á fyrir Josh Howard á eftir Antoine Wright og Shawne Williams í örfá skipti, þegar hann var ekki meiddur.
(Sigleton er ungur og efnilegur.)
Warren Carter og Sun Yue til Knicks
14.9.2009 | 16:07
New York Knicks hafa náð samningi við þá Sun Yue og Warren Carter, Yue var rekinn frá LA Lakers fyrr í sumar og þar kemur einnig fyrir bakvörðurinn Gabe Pruitt, sem Knicks voru einnig að fá til sín. Þá hafa þeir einnig fengið leikmann að nafni Warren Carter en hann 206 cm framherji og var í Illinois háskólanum.
Pruitt til Knicks
13.9.2009 | 20:28
Annar leikmaður sem var valinn í nýliðavalinu árið 2007 hefur nú gert samning við lið, en að þessu sinni var það bakvörðurinn Gabe Pruitt. Pruitt var valinn mun fyrr en Ramon Sessons sem er hinn liðaskiptirinn sem var valinn árið 2007, en Pruitt var valinn 32. en Sessions númer 56, en Sessions hefur verið svo mikið mikið betri að hann verðskuldar miklu meira að hafa unnið titil en Pruitt, en Pruitt vann titil með Boston Celics á nýliðaári sínu í NBA-deildinni.
Sessions endanlega til T´Wolves
13.9.2009 | 20:16
Ramon Sessions er nú að pakka og fara til Minneappolis því gamla lið hans, Milwaukee Bucks hafa ákveðið að jafna ekki tilboð Minnesota Timberwolves í leikmanninn en Sessions var "restricted free agent" og áttu því Bucks rétt á því að jafna hvaða tilboð sem er í leikmanninn þó hann mundi samþykkja boð annarra liða. Sessions átti frábært tímabil á því liðna en hann var með 12,4 stig, 5,7stoðsendingar og 3,4 fráköst, auk þess sem hann stal 1,0 bolta.
Þetta, og annað tímabil hans var hans albesta, en á tímabilinu 2007-2008 skoraði hann réttrúm 8 stig, en hann gaf þó 7,5 stoðsendingar, en hann tapaði mun fleiri boltum, stal jafn mikið og hirti jafn mikið af fráköstum. Hann var með lélegri vítaprósentu á fyrra tímabili sínu, en þó mun betri þriggja stiga nýtingu.
Sessions samdi við Wolves til fjögurra ára og fær á þeim tíma 16,4 milljónir dollara, en hann hefur ekki fengið svo mikið áður, enda var hann valinn 56. í nýliðavalinu árið 2007 og númer 56 er fimmti síðasti leikmaðurinn sem er valinn í öllu heila nýliðavalinu.
(Sessions, í leik með fyrrum liði sínu, Bucks.)
Iverson að ganga frá samningum við Grizz
9.9.2009 | 16:45
Allen Iverson hefur samþykkt boð Memphis Grizzlies um að spila með liðinu næsta tímabil að minnsta kosti og mun líklega semja á næstu 24 eða 48 klukkutímum, sem er 1-2 sólarhringir. Tilboðið er upp á 3,5 milljónir dollara en launahestar eins og Iverson eru ekki vanir því að vera á mörgum milljónum dollara, og fara svo niður í 2-5 milljónir dollara.
Iverson hefur átt litríkt sumar en hann ákvað það að ganga til liðsvið Charlotte Bobcats en aðeins nokkrum tímum áður en hann átti að semja við þá fóru Memphis að reyna að plokka í hann.
(Iverson átti sitt alversta tímabil á ferlinum á
síðasta tímabili.)
Marbury sáttur með NBA feril sinn
8.9.2009 | 14:58
Starbury uppgefin? Eða hvað?...
Vilja Bucks halda Sessions?
7.9.2009 | 10:00
Nú er það stóra spurningin hvort Milwaukee Bucks ætla að nota þessa heilu viku sem þeir hafa til að jafna boð Minnesota Timberwolves og fá Ramon Sessions aftur eða hvort þeir láti hann fara og noti einungis Luke Ridnour og Brandon Jennings, en það er mun líklegra. Hins vegar er erfitt fyrir Wolves að leyfa öllum bakvörðunum sínum að spila því þeir eru með Jonny Flynn, Chucky Atkins, Bobby Brown, líklegast Ramon Sessions og svo Ricky Rubio en hann kemur ekki nærrum því strax til þeirra ef þeir skipta honum ekki. Þá er líklegt að uppstilling T'Wolves verði svona:
C - Al Jefferson 38 mín. - Mark Blount 7 mín. - Ryan Hollins 3 mín.
F - Kevin Love 33 mín. - Ryan Hollins 8 mín - Oleksiy Pecherov 7 mín.
F - Corey Brewer 29 mín. - Damien Wilkins 11 mín.
G - Damien Wilkins 18 mín. - Wayne Ellington 21 mín. - Corey Brewer 3 mín - Bobby Brown 6 mín.
G - Jonny Flynn 31 mín. - Chucky Atkins 17 mín.
* Sessions ekki með.
Sessions til Wolves
4.9.2009 | 17:01
Bakvörðurinn Ramon Sessions hefur samið við "stórveldið" Minnesota Timberwolves en Sessions hefur verið samningslaus i allt sumar og ekkert lið náð í hann. Ekki er hann þó alveg kominn til þeirra því fyrrverandi lið hans Milwaukee Bucks geta jafnað 4 ára og 16 milljóna tilboð T'Wolves og fengið hann aftur. Sessions stóð sig það vel á síðasta tímabili að hann ætti að vera kominn í lið fyrr og betra lið eins og Atlanta Hawks eða Cicago Bulls, en hins vegar hafa bæði þessi lið ekki þörf á honum, bara lið svipað sterk og Hawks og Bulls.
Sessions var með mikilvægustu mönnum Milwaukee Bucks á síðasta tímabili og stóð sig með prýði.
Hann skoraði 12,4 stig og gaf 5,7 stoðsendingar að meðaltali í leik auk þess að hafa stolið 1,1 bolta að meðaltali í leik á síðasta leiktímabili.
Free Agency | Breytt 7.9.2009 kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)