Færsluflokkur: Karfan
Tvífarar: Emeka Okafor og Taye Diggs
22.7.2010 | 12:13
Karfan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvífarar: Marco Belinelli og Rambo
29.6.2010 | 14:49
Karfan | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvífarar: Marcus Banks og Tony Parrish
25.6.2010 | 10:47
Karfan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Manute Bol látinn
20.6.2010 | 02:32
Manute Bol, fyrrverandi miðherji í NBA, lést laugardaginn 19. júní en hann var 47 ára að aldri.
Bol var valinn númer 31 í nýliðavalinu árið 1985 af Washington Bullets þar sem hann hóf feril sinn. Á því tímabili var hann með 3,7 stig 6,0 fráköst og 5,0 varin skot að meðaltali í leik.
Hann spilaði fyrir fjögur lið í NBA, Washington Bullets, Golden State Warriors, Philadelphia 76ers og Miami Heat.
Manute Bol 1962-2010
Karfan | Breytt 23.6.2010 kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvífarar: Jon Barry og Sigurbjörn Hreiðarsson
2.6.2010 | 19:44
Karfan | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tvífarar: Carmelo Anthony og Amanda Bynes
30.5.2010 | 13:28
Karfan | Breytt 31.5.2010 kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Söguhornið: David Robinson
28.5.2010 | 13:30
David Robinson fæddist í Key West í Florida 6. ágúst árið 1965 en hann var annað barn hjónanna Ambrose og Freda Robinson.
Fjölskylda hans fluttist oft milli staða þar sem faðir hans var í bandaríska hernum en eftir að hann hætti þar settist fjölskyldan að í Woodbridge í Virginiu og þar sem David skaraði fram úr í flestum íþróttum nema körfubolta.
Hann sótti Osbourn Park-skólann í framhaldsskóla sem er í Manassas sem er rétt fyrir utan Washington.
Á lokaári sínu í framhaldsskóla var hann orðinn rétt rúmlega tveir metrar á hæð en hann hafði enn ekki æft körfubolta að fullu en hann byrjaði þó að stunda íþróttina seinna á árinu.
Robinson gekk í U.S. Naval Academy-háskólann og er sagður vera besti körfuboltaleikmaður í sögu skólans. Hann valdi sér treyju númer 50 eftir fyrirmynd sinni, Ralph Sampson, og hefur allan sinn feril spilað í henni.
Hann spilaði fyrstu þrjú ár sín í háskóla (með Navy Midshipmen men's-liðinu) undir stjórn Paul Evans sem yfirgaf það til að þjálfa lið Pittsburgh-skólans í körfubolta og á lokaári hans í skólanum spilaði hann undir stjórn Pete Herrmann.
Hann var svo valinn fyrstur af San Antonio Spurs í nýliðavali NBA árið 1987 en hann mátti þó ekki spila með þeim strax því hann þurfti að vera tvö ár í hernum, samkvæmt reglum háskólans.
Tímabilið 1989-90 var fyrsta tímabil hans í NBA af 14 tímabilum með San Antonio Spurs. Þá skoraði hann 24,3 stig, tók 12,0 fráköst og gaf 2,0 stoðsendingar að meðaltali í leik en árið eftir skoraði hann 25,6 stig, tók 13,0 fráköst og gaf 2,5 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Tímabilið 1993-94 skoraði 29,8 stig að meðaltali í leik en það tímabil skoraði hann flest stig að jafnaði í leik á ferlinum.
Hann vann tvo NBA-meistaratitla og báða með Tim Duncan, þann fyrri árið 1999 og þann seinni árið 2003.
Afrek:
- NBA-meistari (1999, 2003)
- Mikilvægasti leikmaður NBA (1995)
- Besti varnarmaður (1992)
- Nýliði ársins (1990)
- Valinn í lið ársins (1991, '92, '95, '96)
- Valinn í varalið ársins (1994, '98)
- Valinn í þriðja lið ársins (1990, '93, 2000, '01)
- Valinn í varnarlið ársins (1991, '92, '95, '96)
- Valinn í varavarnarlið ársins (1990, '93, '94, '98)
- Tíu sinnum valinn í Stjörnuleikinn
Karfan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvífarar: Steve Nash og Graham Alexander
18.5.2010 | 16:26
Karfan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvífarar: Brent Barry og Sverrir Þór Sverrisson
7.5.2010 | 15:43
Karfan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvífarar: Draelon Burns og Aaron Brooks
25.4.2010 | 02:03
Karfan | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)