Holiday að festa sig við byrjunarliðið?
16.12.2009 | 08:12
Jrue Holiday, sem var í byrjunarliði Philadelphia 76ers á mánudaginn gegn Golden State Warriors. Þá skoraði hann 15 stig, gaf 6 stoðsendingar og reif niður 7 fráköst, ásamt því að hafa stolið 3 boltum. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur hans lengi og fyrsti sigur Sixers eftir að hafa tapað 12 leikjum í röð.
Holiday er með 5,7 stig, 2,3 stoðsendingar og 1,9 fráköst að meðaltali í leik, en hann var valinn sautjándi í nýliðavalinu af Sixers.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning