Palli kominn heim
31.5.2009 | 16:02
Páll Kristinsson sem hefur spilað hjá Grindavík
síðustu fjögur tímabilin hefur ákveðið að snúa aftur heim í Njarðvíkina.
Samningurinn er upp á eitt ár og verður það mikill styrkur fyrir Njarðvíkurliðið.
Ferill Páls Kristinssonar á Íslandi er stórglæsilegur, hann hefur spilað 14 tímabil í efstu deild þar af 10 með UMFN. Hátindur Palla var eflaust árið 2002 þegar hann var lykilmaður í Íslands & Bikarmeistaraliði UMFN. Í úrslitaeinvíginu árið 2002 gegn Keflavík var Palli með 17 stig og 10 fráköst að meðaltali á leik og var hreint út sagt frábær. Tímabilið 2003-2004 gerði Palli 17 stig að meðaltali og reif 9 fráköst að meðaltali hjá UMFN. Einnig gerði Páll frábæra hluti í Grindavík og það er ljóst eftir framistöðuna í úrslitakeppninni 2009 að Palli á nóg eftir!
Palli K.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: KKÍ | Breytt 14.6.2009 kl. 14:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.