Barcelona og Caja Laboral mætast í úrslitunum á Spáni
8.6.2010 | 18:23
Barcelona og Caja Laboral munu mætast í úrslitum spænska körfuboltans í ár.
Evrópumeistarar Barcelona eiga heimavallaréttinn en þeir hafa farið nokkuð auðvelt í gegnum úrslitakeppnina en Caja þurftu oddaleik gegn Real Madrid til þess að komast í úrslitin.
Þann 10. júní (á morgun) verður fyrsti úrslitaleikurinn en það lið sem vinnur þrjá leiki fyrst verður spænskur meistari.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)