Færsluflokkur: NBA
Úrslit næturinnar - Leik Hawks og Wizards frestað
7.2.2010 | 12:15
Einum leik var frestað í nótt (Wizards-Hawks), en snjókoman var mikil í Washingtonborg. San Antonio unnu annan leik sinn á árlegri útileikja syrpu með 17 stigum. Þetta var þriðji leikur þeirra í útigöngunni, en nú gegn LA Clippers.
Memphis Grizzlies töpuðu þriðja leik sínum í röð, nú gegn Minnesota Timberwolves, 109-101.
Úrslit næturinnar og tölfræði.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar - Wizards unnu naumt gegn Magic
6.2.2010 | 11:03
Washington Wizards unnu sætan sigur á Orlando Magic í nótt, 91-92. Caron Butler skoraði á síðustu stundu, en Orlando áttu eitt skot þegar 0,5 sekúndur voru eftir.
Þá unnu Denver Nuggets öruggan 13 stiga sigur á Los Angeles Lakers, 113-126, þar sem átökin voru mikil á milli Ron Artest og Joey Graham.
Stig: Chauncey Billups (DEN) með 39 stig.
Fráköst: Dwight Howard (ORL) með 18 fráköst.
Stoðsendingar: Rajon Rondo (BOS) með 11 stoðsendingar.
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar - Rondo með tvennu í sigri Celtics
4.2.2010 | 18:48
Rajon Rondo skoraði 22 stig, gaf 14 stoðsendingar og tók 6 fráköst í fimm stiga spennusigri Boston Celtics á Miami Heat í nótt, 107-102.
Þá vann San Antonio Spurs sætan sigur á Sacramento Kings, en George Hill skoraði 23 stig (jafnaði met sitt) og gaf 9 stoðsendingar (met hans) í leiknum, sem fór 113-115. Þess má geta að Spurs eru á sinni árlegu átta leikja ferðalagi.
Philadelphia 76ers vann þriggja stiga sigur á Chicago Bulls, en þar var aðeins baráttan og keppnisskapið sem skilaði sér. Leikurinn fór 106-103 fyrir Sixers.
Toronto 108 New Jersey 99
Tölfræði
NBA | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Verður Pierce með um helgina?
3.2.2010 | 17:02
Paul Pierce meiddist á fæti fyrir stuttu og að sögn NBA.com gæti hann verið fótbrotinn, en nú í morgun barst frétt frá Karfan.is að hann væri aðeins tognaður og hann gæti spilað með Boston Celtics um helgina.
Þetta eru ekki amalegar fregnir fyrir Celtics-menn, en þeir hafa verið úr jafnvægi upp á síðkastið með 4 sigra og 6 töp í síðustu 10 leikjum, í þriðja sæti austursins.
Pierce er með 18,9 stig að meðaltali í leik, en enginn í Boston-liðinu er með fleiri stig. Auk þess er hann með 3,4 stoðsendingar í leik.
NBA | Breytt 11.2.2010 kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar
2.2.2010 | 17:36
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar
1.2.2010 | 16:47
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar
31.1.2010 | 13:13
Fráköst: Antawn Jamison (WAS) með 23 fráköst.
Stoðsendingar: Darren Collinson (NOH) með 18 stoðsendingar.
18:00 Denver - Spurs
20:30 Boston - LA Lakers
23:00 Cleveland - LA Clippers
23:00 Detroit - Orlando
23:00 New Jersey - Philadelphia
23:00 Toronto - Indiana
00:00 Houston - Phoenix
00:00 Minnesota - New York
00:00 Oklahoma - Golden State
NBA | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miller með 52 stig í sigri Blazers
31.1.2010 | 13:00
Andre Miller náði stigameti sínu í nótt þegar Portland Trail Blazers sóttu Dallas Mavericks heim.
Leikurinn var æsispennandi og á lokasekúndunni í framlengingu átti Dirk Nowitzki skot til að jafna, en það geigaði, og Blazers fóru heim með 112-114 sigur frá Texas.
Úrslit næturinnar munu birtast innan skamms.
NBA | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrslit næturinnar - Stjörnumenn Hawks fengu enga hvíld gegn Celtics
30.1.2010 | 10:52
Bostons Celtics og Atlanta Hawks áttust við í síðasta sinn á árinu í nótt. Atlanta hafa unnið alla fjóra leiki liðanna, en stjörnuleikmenn Hawks spiluðu báðir nánast allan leikinn, Al Horford spilaði 41 mínútu, en Joe Johnson 43.
Þá töpuðu Denver Nuggets sínum fyrsta leik í síðustu níu leikjum, en þeir höfðu unnið 8 í röð fyrir leikinn gegn Oklahoma í nótt. Kevin Durant skoraði 30 stig í nótt en hann fer að nálgast 5.000 stigin.
San Antonio Spurs unnu annan leik sinn í röð eftir stutta taphrinu, en þeir spiluðu án Tony Parker gegn Memphis Grizzlies í nótt. George Hill kom og fyllti vel í skarð hans, með 18 stig og 5 stoðsendingar. DeJuan Blair byrjaði á bekknum og skoraði 8 stig og tók 10 fráköst, en þessi drengur er að taka rosalegum framförum þessa dagana.
New Orleans Hornets og Chicago Bulls, sem nýlega skiptu Aaron Gray fyrir Devin Brown, mættust í tveggja stiga spennutrylli í nótt, en Chris Paul meiddist á hné í leiknum. Hann er hins vegar stríðsmaður og hélt áfram, en þrátt fyrir það töpuðu Hornets með tveimur stigum, 106-108.
NBA | Breytt 31.1.2010 kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)