Boston láta ljós sitt skína - niðurlægðu Heat

paul_pierceBoston Celtics unnu Miami Heat í nótt, 106-77. Nú eru Boston komnir með þægilega forystu í seríunni, 2-0 og eru á leið til Miami.

Paul Pierce skoraði aðeins 13 stig, en Ray Allen sá um allt sem heitir þriggja stiga körfur þar sem hann skoraði úr 7 þristum af 9. Glen Davis, sem fyllti í skarð Kevin Garnett, skoraði 23 stig og tók 8 fráköst, sem er betra en Garnett er með að meðaltali í leik á tímabilinu (19,8 stig og 10,8 fráköst a meðaltali í leik).

Hjá Miami skoraði Dwayne Wade 29 stig og gaf 5 stoðsendingar og Michael Beasley skoraði 13 stig og tók 7 fráköst.

Stigaskor Celtics:

Allen: 25
Davis: 23
Pierce: 13
Perkins: 13
Rondo: 8
Robinson: 7
Wallace: 6
Allen: 4
Finley: 3
Daniels: 2
Williams: 2

Stigaskor Heat:

Wade: 29
Beasley: 13
Chalmers: 10
Haslem: 8
Richardson: 5
Arroyo: 4
O'Neal: 2
Wright: 2
Anthony: 2
Jones: 2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og tíu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband