Mike Brown rekinn frá Cavaliers

mike_brownDavid Aldridge, fréttamaður NBA, staðfesti í morgun að Mike Brown, þjálfari Cleveland Cavaliers, hefði verið rekinn frá liðinu.

Brown stóðst ekki væntingar í úrslitakeppninni eftir 61/21 árangur á venjulega leiktímabilinu og gerði óákveðnar skiptingar og spilaði sama liðinu í 35-40 mínútur í leik. Einnig vöru leikkerfi Cavaliers út í hött eins og flestir vita.

Brown þjálfaði Cavaliers í fimm ár en náði aldrei að byggja meistaralið í kringum LeBron James, þó hann hafi náð tvisvar sinnum í röð besta árangrinum á leiktímabilinu.

Árangur Brown með Cavaliers frá upphafi: 

2005-06: 50 sigrar - 32 töp
2006-07: 50 sigrar - 32 töp (komust í úrslit)
2007-08: 45 sigrar - 37 töp
2008-09: 66 sigrar - 16 töp
2009-10: 61 sigur - 21 tap


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fimmtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband