Úrslit næturinnar - Spurs unnu Celtics

Úrslit næturinnarÍ nótt fóru fram margir spennandi leikir. San Antonio Spurs, sem nýlega höfðu unnið Cleveland Cavaliers, heimsóttu Boston Celtics í spennandi leik framan af, en að lokum gáfust Celtics-menn upp og Spurs unnu sannfærandi sigur, 73-94

Þá unnu Orlando Magic nauman sigur á Denver Nuggets, 103-97, en mikill hiti var í leiknum, þar sem Vince Carter meiddist illa, tvær tæknivillur voru dæmdar og seint í fjórða leikhluta munaði litlu að syði upp úr myndi hjá leikmönnum liðanna.

Í leik Portland Trail Blazers og Oklahoma City Thunder komust Portland yfir með tíu stigum í fyrri hálfleik ,en OKC náðu fljótt að minnka þann mun, því að eftir þriðja leikhluta voru þeir undir með þremur stigum.

Hins vegar töpuðu þeir leiknum með fimm stigum, 89-92 eftir að Kevin Durant klikkaði úr jöfnunarþrist, Andre Miller náði valdi á boltanum, OKC-menn brutu af honum og hann skoraði úr tveimur vítaskotum, og leikurinn búinn.

Í öðrum leikjum næturinnar, sem einnig voru spennandi, unnu Cleveland Cavaliers sjö stiga sigur á Sacramento Kins, 97-90, Milwaukee Bucks unnu Memphis Grizzlies, 108-103, Atlanta Hawks unnu Indiana Pacers, 94-84, Detroit Pistons féllu fyrir Chicago Bulls, 103-110, Miami Heat unnu nauman sigur á Toronto Raptors, 97-94, Phoenix Suns unnu sex stiga sigur á Minnesota Timberwolves, 105-111 og Golden State Warriors unnu öruggan sigur á LA Clippers, 103-121.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og fimm?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband