Úrslit næturinnar - Spurs stöðvuðu átta leikja sigurgöngu Cavs

Manu Ginobili Keyrir a körfu CavaliersCleveland Cavaliers heimsóttu San Antonio Spurs í nótt. LeBron James setti upp litla sýningu í byrjun, en Spurs náðu þó að verjast henni síðar. Spurs unnu með fimm stigum, 102-97.

Leikurinn var mjög skemmtilegur og fór munurinn aldrei yfir tíu stig. Manu Ginobili, sem sést hér til hliðar, var rosalegur í nótt og skoraði 30 stig, tók 6 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Hjá Cavaliers voru LeBron James (27 stig) og Antawn Jamison (24 stig) atkvæðamestir. Mo Williams var ekki að finna taktinn í leiknum en hann skoraði 6 stig og gaf 4 stoðsendingar.

Í öðrum leikjum næturinnar unnu til dæmis Denver Nuggets  nauman sigur á Toronto Raptors, 96-97 og Oklahoma City Thunder unnu Los Angeles Lakers stórt, 91-75.


Spurs - Cavs


Raptors - Nuggets

Úrslit og tölfræði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sautján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband