Úrslit næturinnar - Powe spilaði gegn sínum gömlu félögum

Leon PoweLeon Powe spilaði í nótt sinn fyrsta leik á tímabilinu með Cleveland og sinn fyrsta leik gegn Boston Celtics. Hann lék í tæpar 4 mínútur og skoraði 4 stig og tók 2 fráköst.

Cleveland unnu leikinn auðveldlega, 88-108, en LeBron James skoraði 36 stig, tók 7 fráköst og gaf 9 stoð-sendingar.

Í spennutrylli næturinnar unnu Milwaukee Bucks nauman sigur á Indiana Pacers, 108-112, þar sem Brandon Jennings skoraði 18 stig, gaf 7 stoðsendingar og tók 4 fráköst.

Í leik númer þrjú unnu Denver Nuggets svokallaðan "Billups-sigur" á Golden State Warriors en Chauncey Billups skoraði 37 stig, gaf 9 stoðsendingar og tók 6 fráköst.

Boston 88 -108 Clevaland
Indiana 110 - 112 Milwaukee
Golden State 112 - 127 Denver

Tólf leikir fara fram á morgun sem þýðir að sex lið sitja hjá. Skemmtilegir leikir verða á dagskrá eins og til dæmis Washington-New York, Houston-San Antonio og Atlanta-Dallas.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband