Körfubolti.net

Körfubolti.net er komin í loftið eins og flestir vita og eftir u.þ.b. 3 mánuði kemur nýja útlitið.

Við erum á Twitter, KorfuboltiNet, endilega að fylgja okkur þar og svo erum við með Facebook síðu sem að einfaldlega heitir Körfubolti.net

Þá er hægt að auglýsa á síðunni og kostar það 500 krónur á mánuði fyrir utan fyrsta mánuðinn sem kostar 200.

Til að auglýsa á vefnum, hafðu samband á korfubolti@korfubolti.net.

Okkur vantar enn sjálboðaliða sem vilja skrifa á síðunni, en hvort sem þú vilt skrifa eina frétt á ári eða tvær fréttir á dag geturðu fengið aðgang.

Til að verða fréttaritari, hafðu samband á netfangið .


Körfubolti.net í loftið!

tölvawww.korfubolti.net er komin í loftið og erum við farnir að gera fréttir daglega en erum auðvitað alltaf að bæta við ennþá.

Við erum ennþá í leit að fleiri sjálfboðaliðum sem vilja leggja sitt af mörkum og skrifa fréttir hjá okkur, svo endilega sendið okkur E-Mail á korfubolti@korfubolti.net.


Felton tryggði Knicks sigur - Úrslit næturinnar

Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt.

Raymond Felton tryggði New York Knicks sigur með ótrúlegum hætti á Toronto Raptors þegar þrjár sekúndur voru eftir og Knicks eru búnir að vinna sex leiki í röð og eru í sjötta sæti Austursins.

Þá skoraði Derek Fisher úr sniðskoti á lokasekúndunum í leik Los Angeles liðanna en Lakers unnu leikinn, 86-87.

Í síðasta spennutrylli næturinnar skoraði Andrew Bogut úr ótrúlegu "Alley-oop" sniðskoti úr innkasti á síðustu sekúndunni í leik Milwaukee Bucks og Indiana Pacers og tryggði Bucks sigurinn, 97-95.

Þá tókst George Karl, þjálfara Denver Nuggets ekki að vinna sinn þúsundasta NBA leik þar sem Boston Celtics unnu öruggan sigur á Karl og félögum, 105-89 en Carmelo Anthony var ekki með í leiknum.

Boston 105-89 Denver
Cleveland 83-88 Chicago
New York 113-110 Toronto
Minnesota 103-111 Oklahoma
New Orleans 93-74 Detroit
San Antonio 111-94 Golden State
Phoenix 98-104 Memphis
Utah 98-111 Miami
Sacramento 116-91 Washington
LA Clippers 86-87 LA Lakers
Milwaukee 97-95 Indiana

Knicks með sjö útisigra í röð - Úrslit næturinnar

New York Knicks unnu sinn sjöunda útisigur í röð í nótt þegar þeir lögðu Toronto Raptors af velli, 99-116.

Þá unnu San Antonio Spurs auðveldan sigur á New Orleans Hornets, 109-84, þar sem Hornets náðu aldrei forystu en Spurs náðu mest 38 stiga mun.

Spurs eru með besta árangur í deildinni hingað til, 17 sigra og 3 töp en þar á eftir koma Boston og Dallas með 16 sigra og 4 töp hvort lið.

Úrslit næturinnar eru eftirfarandi:

Boston 100-75 New Jersey
Detroit 92-102 Cleveland
Oklahoma 114-109 Golden State
Denver 108-107 Memphis
Phoenix 125-108 Washington
Portland 100-91 LA Clippers
San Antonio 109-84 New Orleans
Toronto 99-116 New York

Iggy til Cavs?

Cleveland Cavaliers gætu verið að fá aðra stórstjörnu í raðir sínar, en nú hefur þeim orðrómi verið dreift Vestanhafs að Andre Iguodala gæti hugsanlega verið á leiðinni þangað. Iguodala er 26 ára gamall og er plássfrekur í liði Philadelphia 76ers, þar...

Paul Pierce er ennþá lifandi

Paul Pierce setur eina stóra í "grillið" á Serge Ibaka.

Óskum efir ritara!

Jæja, þá erum við að klára að hanna vefsíðuna og hún mun heita Körfubolti.net um helgina líklega. Við erum einungis að skrifa sem áhugamenn og erum við mjög uppteknir flesta daga vikunnar, svo við vorum að spá ef einhver gæti gerst fréttaritari hjá...

Spurs á sigurgöngu - Úrslit næturinnar

Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Utah Jazz hafa nú unnið tvo leiki í röð á geysisterkum liðum en í gærkvöldi unnu þeir Orlando Magic. Þá eru San Antonio Spurs í sigurgírnum en þeir eru komnir í þriðja sæti Vestursins með sex sigra og eitt...

Við erum á Facebook

Jæja þá erum við hér á NBA-Wikipedia kominn á Facebook en þið þurfið bara að ýta á ''like'' takkann sem er efst á Facebook síðunni en þið skrifið bara inná Facebook NBA Wikipedia og ''læka'' síðunna auðvitað.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband